Kanínur og kosningakaffi
Adda Steina @ 17.52 10/5/03
Sjálfstæðisflokkurinn bauð upp á kosningakaffi í morgun – yndælis hátíðakaffi frá Te og kaffi, sérpakkað fyrir flokkinn og dreift í hús. Ég var himinlifandi yfir gjöfinni og Þórir hellti upp á í bítið. Um það bil sem við skáluðum fyrir góðum kosningadegi í þessum hæglætisdrykk tókum við eftir því að kanínurnar voru horfnar.
Sprettur hafði verið iðinn við að reyna að grafa sig út úr búrinu undanfarið en við töldum okkur hafa komið í veg fyrir það með ýmsum varnaraðgerðum. En í morgun kom í ljós að hann hafði grafið sig undir varnarveggina, ýtt þeim burt og mjakað sér út. Þeir bræður, Sprettur og Blakkur, voru horfnir.
Við mönnuðum leitarsveit með sonum okkar í broddi fylkingar en kanínurnar eru ófundnar enn. Ég er að vona að þær hafi bara ákveðið að skella sér í kosningakaffi til einhvers flokksins og skili sér að talningu lokinni. Þær eru mjög sólgnar í grænt og gefnar fyrir stöðugleika svo að ef til vill ætti ég að leita uppi skrifstofu Halldórs og félaga.
Mér þótti sólin í morgun – og kosningakaffi Dlistans – frekar benda til þess að stjórnin haldi velli. Einhvern tíman heyrði ég að ef sólin skini á kjördag héldu ríkjandi valdhafar velli því að fólk hefði tilhneigingu til að vera í góðu skapi og jákvætt út í ástandið í sólinni.
Eitt er víst – nóttin verður spennandi og morguninn ekki síður því að þá kemur í ljós hvort kanínurnar hafa skilað sér eða hvort þær séu gegnar Framsókn á hönd fyrir fullt og allt.
Binni @ 10/5/2003 19.34
Þetta var allt planað, örugglega.
Ég myndi leita að kanínunum í Valhöll. Ekki fékk ég neitt kaffi frá þeim. Ég á engar kanínur.