addasteina.annáll.is

AnnállHeimiliStefnumótunTrúmálÞjóðlíf

« Jól í júní · Heim · Hvers konar kristin(n) ertu? Taktu prófið »

Lyktnæmir fagurkerar

Adda Steina @ 21.34 17/11/03

Synir mínir eru afar lyktnæmir. Svo lyktnæmir að þeir geta varla burstað tennurnar. Sá eldri þolir ekki lykt af myntu og sá yngri þolir ekki barnatannkrem. En nú hefur hann fundið lausn sem bjargar honum frá gerfigómi um tvítugt.

Af tillitssemi við eldri son okkar sem aldrei hefur þolað lykt af myntu og eucalyptus höfum við um árabil keypt alls konar barnatannkrem með ávaxtabragði eða vemmilegu tyggjóbragði til að tryggja að tennurnar væru hreinsaðar. Rétt að taka fram að þær eru aldrei jafnvel burstaðar og maður óskar en þetta er þó í áttina.

Nú hefur Björn, sá yngri, fundið út að honum þykir lyktin af barnatannkreminu, bláu tannkremi í Bug’s bunny túbu, mjög slæm og getur vart tannburstað sig fyrir andköfum yfir því. Þeir bræður reyndu í fyrstu að leysa málið í sameiningu með því að Unnar Þór einfaldlega héldi um nefið á Birni meðan þeir tannburstuðu sig en það reyndist frekar óhöndugt. Björn dó þó ekki ráðalaus frekar en fyrri daginn og hefur nú komið sér upp þvottaklemmu á baðinu sem hann smellir utan um nasaholurnar meðan hann tannburstar sig. Sérkennilegt – en virkar.

url: http://addasteina.annall.is/2003-11-17/21.34.06/

© addasteina.annáll.is · Færslur · Ummæli