Bænin um vorið
Adda Steina @ 13.53 24/3/04
Sonur minn var að fara með bænirnar eitt kvöldið fyrir allnokkru þegar hann snéri sér að mér og spurði: Af hverju segjum við aldrei sumar, ef það til dæmis er sumar?
Ég hváði og áttaði mig ekki á spurningunni.
Jú, sagði sá stutti, við setjum alltaf bara: Það er vor, þú sem ert á himnum….
Þetta rifjaðist upp fyrir mér um daginn þegar ég fékk sendingu frá litlum fjögurra ára frænda sem fór með faðirvorið fyrir föður sinn. Bænina kallar sá stutti jafnan „Vorið„ og hún hljómaði svo:
Faðir vor
þú sért á himnum
helgist nafn
til komi þitt ríki.
Verði vilji
svo á himnum.
Gef oss daglegt brauð
og fyrirgef nautum.
Eigi leið í freistni
heldur frelsa oss frá nautum,
því þitt er ríkið
mátturinn og amen.
Soffía @ 13/5/2004 22.24
Þetta er frábært… minnir mig á þegar einn bræðra minna (þá þriggja ára) horfði biðjandi á mömmu þegar hún var að setja hann í rúmið og sagði: “Gerðu það, ekki mátturinn og dýrðin.” Hann var svo rosalega þreyttur og vildi fara að sofa strax!