addasteina.annáll.is

AnnállHeimiliStefnumótunTrúmálÞjóðlíf

« Göran Persson vígður til prests í laumi · Heim · Um hvað talar þú? »

Skriftaspegill

Adda Steina @ 15.48 1/4/04

Á vef kirkjunnar er grein um skriftaspegil sem mér finnst áhugaverð. Höfundur hennar er sr. Kristján Valur Ingólfsson. Hann útskýrir skriftaspegil þannig:

Skriftirnar fylgja ákveðinni aðferð sem innifelur játningu syndanna og aflausn, eða fyrirgefningu. Til þess að undirbúa sig fyrir skriftir voru samdar leiðbeiningar fyrir skriftabörn. Þær voru oft kallaðar skriftaspegill.

Í skriftaspeglinum er margt gott til íhugunar. Það krefst næðis að lesa hann vel svo að ég valdi fyrsta hlutann til að íhuga í dag:

Á hvað treystir þú í lífi þínu?
Hver er raunverulegur grundvöllur lífs þíns?

Treystir þú á starfskrafta þína,
bankainnistæður eða fjármuni,
á andlegan styrk og gáfur,
á sambönd þín,
á staðfestu þína og heiðarleika,
á trúrækni þína eða afturhvarf þitt?

Ég hvet alla til að lesa skriftaspegilinn. Þetta eru spurningar sem við höfum öll gott af að íhuga með okkur sjálfum.

url: http://addasteina.annall.is/2004-04-01/15.48.24/

© addasteina.annáll.is · Færslur · Ummæli