addasteina.annáll.is

AnnállHeimiliStefnumótunTrúmálÞjóðlíf

« Vinsælar syndir · Heim · Af framsóknarkanínunum brotthlaupnu »

Asasótt

Adda Steina @ 08.57 10/4/04

Ég las Fréttablaðið af áfergju í morgun, enda orðin þyrst í nýjan blaðapappír til að renna fingrum um, engin dagblöð í gær. Það var líka óvenjumargt sem mér fannst skemmtilegt eins og stúdía um prestlegasta prestinn, upplýsingar um messu við sólarupprás á Þingvöllum og umfjöllun sem tengdist páskum á einn eða annan hátt.

Það merkilegasta var þó nýyrði sem dr. Sigurbjörn Einarsson biskup kynnti á kyrrðardögum í Skálholti nú um bænadagana. Það er orðið ASASÓTT, sem honum kom í hug við lestur skýrslu um streitubundin lífsstílsvandamál.

Ég rakst á þetta rétt eftir að hafa lesið mér (í Birtu) til um dáleiðslugeisladiska sem hjálpa fólki að losna við offituvandamál og streitu. Var staðráðin í að ná í eintak, enda er ég ekkert stressuð af því að ég hafi svo mikið að gera – þetta er bara aumingjaskapur og sýnir að ég þoli ekki álag. Sumsé, kaupa eina lausn á geisladiski.

Asasótt. Ég hlakka til að heyra útleggingar Sigurbjörns biskups á þessu orði. Ég sé það myndrænt fyrir mér – að vera á valdi asans, hafa aldrei tíma til að hvíla og bara vera. Heltekur mann eins og flensa, og erfitt að losna við hana. Eina ráðið við flensu er reyndar að hugsa um heilsuna, leggjast í rúmið, vera þolinmóður og hvíla sig. Kannski það væru líka fyrstu skrefin til að losna við Asasótt.

url: http://addasteina.annall.is/2004-04-10/08.57.31/

Athugasemdir

Fjöldi 1, nýjasta neðst

gunný @ 11/4/2004 12.08

Asasótt þykir mér gullfallegt orð yfir kvilla sem teljast verða almennir nú á dögum.

Spurning hvort fólki á Íslandi (og ég held því fram að framsetning hákirkjulegra hátíða á Íslandi í dag sé sérstaklega vinveitt kapítalískum háttum) takist með hugtakinu að rifja upp að fólk, eða auður almennt, er ekki skilgreint með því sem við eigum eða höfum, heldur því sem við erum.

Erich Fromm er góður þegar kemur að þessum þemum.

Lokað er fyrir athugasemdir.

© addasteina.annáll.is · Færslur · Ummæli