addasteina.annáll.is

AnnállHeimiliStefnumótunTrúmálÞjóðlíf

« Af framsóknarkanínunum brotthlaupnu · Heim · Jólaamstur »

Að breyta vatni í vín

Adda Steina @ 21.54 15/12/04

Það er erfitt að byrja aftur að skrifa á annál eftir langt hlé. Hlé, sem er ekki tilkomið af því að ég hef ekkert að segja – það vil ég taka skýrt fram – heldur af einstöku dáð – og dugleysi mínu. En nú er mál að linni – ég má til að benda á hinn frábæra þátt um Jesú og Jósefínu á Stöð 2.

Þessi þáttur var jóladagatal danska sjónvarpsins í fyrra og vakti mikla athygli. Mér er sagt að 70 – 80 % danskra presta hafi nýtt hann í predikun á aðfangadagskvöld og mig undrar það ekki. Þátturinn segir frá Jósefínu sem á afmæli 24. des og finnst það fúlt. Hún er því á móti jólunum og jólatilstandi fjölskyldunnar. Fyrir töfra kemst hún í kynni við Jesú 12 ára og ýmislegt fer að breytast.

Ég ætla ekki að rekja söguþráð hér, mæli bara með að fólk fylgist með þáttunum. En eitt af því sem er svo skemmtilegt er að fólkið í þáttunum hefur mismunandi trúarafstöðu – Jósefína er til dæmis ekkert of viss um Guð. Strákarnir mínir fylgjast vel með þáttunum og margt mannlegt höfðar til þeirra. Þannig heyrði ég samúðarstunu frá eldri syninum þegar í ljós kom að María var einkar ákveðin móðir og húsmóðir og réði flestu á sínu heimili. “Þetta kannast maður við,” tautaði eldri sonurinn. Sá yngri var spenntur fyrir gladiator sem Jesú barðist við.

Í þættinum í dag var Jesú kominn til Danmerkur nútímans og lenti að sjálfsögðu inn á “heimili fyrir unglinga sem líður illa” því að hann sagðist vera Jesú og eiga heima í Nasaret. Jesú sat hjá sálfræðingi sem reyndi að finna út hvað Jesú væri að flýja með því að þykjast vera Jesú og spurði hvort það væru erfiðleikar á heimilinu: rifrildi, drykkja….

“Ég hugsa að mömmu finnist pabbi drekka of mikið vín”, sagði Jesú.

“Og hvað finnst þér um það, Jesús”, sagði sálfræðingurinn. “Hvernig líður þér með það?”

Og Jesús svaraði: “Ja, það getur auðvitað verið þreytandi að vera sífellt að breyta vatni í vín.”

url: http://addasteina.annall.is/2004-12-15/21.54.31/

Athugasemdir

Fjöldi 1, nýjasta neðst

Árni Svanur @ 16/12/2004 08.44

Tek undir með þér, þetta eru skemmtilegir þættir og mjög áhugavert rannsóknarefni að auki. Ég lá einmitt yfir fyrsta þættinum í gær :-)

Lokað er fyrir athugasemdir.

© addasteina.annáll.is · Færslur · Ummæli