addasteina.annáll.is

AnnállHeimiliStefnumótunTrúmálÞjóðlíf

« Að breyta vatni í vín · Heim · Nýjar bækur eftir Iðunni Steinsdóttur »

Jólaamstur

Adda Steina @ 23.13 17/12/04

Þegar piparkökurnar fóru að hlaðast um bekki og von var á vanilluhringjum í selskapinn neyddist ég til að tæma nokkra jólasmákökubauka og fann þá talsvert af kökum frá í fyrra. Sem er skrítið því að mig minnir að ég hafi farið með allan afganginn í vinnuna og gefið fólki sem kunni gott að meta.

Eitthvað hefur þó orðið eftir hér heima og leynst í ár, ilmar nú ekki lengur, lyktin gefur frekar í skyn þrátt smjör og langa geymslu án E-efnanna sem allt varðveita og munu koma í veg fyrir að við rotnum í gröfunum ef svartsýnisspár ganga eftir.

Að henda jólakökum síðasta árs til að rýma fyrir nýju jólakökunum er árviss viðburður hjá mér. Mér er reyndar ósárt um smákökurnar – þeirra þætti er að mestu lokið þegar bakstursilmurinn hverfur eða víkur fyrir nýsoðnu hangikjöti og heimagerðu rauðkáli. Því að enginn hér kærir sig mikið um að borða þær. Mér hefur þó sést bregða þegar heilu laufabrauðsstaflarnir, fagurlega útskornir, gægjast feimnir upp í ljósið eftir ársveru í djúpum álboxum. Ég legg mikla rækt við laufabrauðsgerð, tel mig fletja út flestum betur og hafa verið fyrirmynd ungmenna í fjölskyldunni þegar kemur að laufaskurði (með hníf, ekki skurðjárni). En laufabrauð má bara borða eftir að jólin eru gengin í garð, eins og allir vita. Og á jólum er svo fjarska margt annað að borða að þó að ég ætti lífið að leysa torga ég vart 100 laufakökum, einkum ekki þeim sem aðeins eru gerðar úr rúgi, salti og vatni.

Ár frá ári fækkar kökunum sem ég geri í von um að brauðið dýra gangi ekki af og gleymist. Nú á ég 40 – 50 kökur og hef jafnvel velt því fyrir mér hvort það sé við hæfi að fá sér eina köku við jólakortaskriftir, til að létta mér þá tafsömu iðju. Enn hef ég þó ekki geta rofið áratuga fjölskylduhefð og svo mikið sem smakkað á brotinni köku. Ekki fyrir jól.

Mig langar ekki í smáköku – ekki frekar en aðra í þessari fjölskyldu ef frá er talin piparkökuáhugi drengjanna. Það er því fátt sem léttir mér skriftirnar og mörg kort eftir, fjarska mörg því að við erum óvenjusein fyrir og Þórir farinn til Íran. Kemur aftur 22. des. Þá verður of seint að senda kortin.

Í Malasíu gat maður alltaf tekið næsta hátíðsdag, t.d. Ad il fitr (ramadanlok) eða kínverska nýárið ef maður missti af jólunum við kortaskrifin. Ekki alveg viss um að það virki hér.

Verst að finna aldrei bunka af gömlum jólakortum, í umslögum, með utanáskrift, ósend. Það væri nú fengur í því.

url: http://addasteina.annall.is/2004-12-17/23.13.02/

Athugasemdir

Fjöldi 1, nýjasta neðst

Árni Svanur @ 18/12/2004 10.49

En að senda Þrettándakort?

Lokað er fyrir athugasemdir.

© addasteina.annáll.is · Færslur · Ummæli